Færsluflokkur: Bloggar
2.11.2007 | 14:55
Það sem ein rannsókn segir hollt segir önnur að sé óhollt
Alltaf koma upp öðru hvoru niðurstöður hinna og þessa rannsókna. Svo virðist sem þær geti verið þvert á hver aðra og allt hljómar þetta mjög þversagnakennt. Þess vegna er mikilvægt að skoða forsendur rannsóknanna. Hvað er verið að leita að, hvernig og hvers vegna. Sjáið t.d. þessa grein sem virðist byggja á aðeins víðari forsendum en sú danska
http://www.guardian.co.uk/uk_news/story/0,3604,621861,00.html
Vín er hollt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2007 | 01:32
Hvílík leti
Hef verið mjög slappur í blogginu. Það er mál að rífa upp einhver skrif og taka sig saman í rithöndinni.
Lífið er gott, kvæntur og góður. Það er gríðarlegt mál að eiga konu sem er af erlendu bergi
brotin og reyna að koma henni inn í íslenskt þjóðfélag. Þyrfti að hringja í Jónínu Bjartmarz. Verst að hún missti þingsætið, spurning um að finna annan bitling.
góða nótt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2006 | 01:56
Í dag
Fór ég í ræktina.
Brunaði um á Harley-inu.
Heimsótti bróður minn og snarklikkaða syni hans.
Kíkti við hjá veikri móður minni.
Hitti nýjan frambjóðanda Samfylkingarinnar í Kraganum, Árna Pál Árnason. Ansi frambærilegur maður sem mér líst vel á.
Sá Ísland tapa einum landsleiknum enn í fótbolta, ekkert kom á óvart þar.
Linkur dagsins sýnir okkur hins vegar hvað snillingar gera við bolta. Þeir láta þá dansa og spila, kíkið á þetta því þetta er ansi magnað
It takes a lot of BALLS to make a Video like this on Tech Pedia
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2006 | 02:33
Þetta er blogg-fyrirsögn
Búinn að ætla lengi að hefja blogg. En það eina sem mér dettur í hug í kvöld er að skíra blessaða síðuna
"Bobbi bloggar"
hún er hér með appelsínusafa ausin og nafn gefið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)