20.10.2007 | 23:13
Varhugavert vínfrumvarp
Get ekki séð annað en að allt varðandi vínfrumvarpið sé mjög vanhugsað. Rök fylgismanna eru ótrúlega ófagleg og byggjast aðallega á "ég held" og "mér finnst ólíklegt". Þeir ættu að kynna sér raunverulegar rannsóknir og vísindalega unnar kannanir um málið og taka til greina hvað gerst hefur í löndunum í kringum okkur. Í Finnlandi og á Bretlandseyjum er mikil eftirsjá að hafa opnað svona fyrir áfengissöluna. Frumvarpið er á skjön við vitræna stefnu í heilbrigðismálum sem hvetur til letjandi aðgengis (skemmtileg samblanda, letjandi-hvetjandi) í áfengis- og vímuefnamálum. Nýbúnir að taka Kódein af opnum lyfjamarkaði en segja samt; "Hmmm, bezt að skella þá vímuefninu áfengi í matvöruverzlanir. Það er svo skynsamlegt". Allt tal um"drykkjuvenjur Íslendinga" og "forræðishyggju" læt ég sem vind um eyru þjóta og bendi því til eftirfarandi tengla.
http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=6089
http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1267141
http://www.bmj.com/archive/7088e1.htm#4-ref4
http://www.emhf.org/resource_images/Part_07.pdf
...o.fl. Látum þetta nægja í bili.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:36 | Facebook
Athugasemdir
Hrafnkell, hvað er ekkert vandamál í Danmörku og Þýskalandi?
Skoðaðir þú tenglana?
Hversu vel að þér ertu á heilbrigðissviðinu í öðrum löndum?
Og ef Íslendingar eru fífl sem ekki kunna með áfengi og frjálsræði að fara (stórar fullyrðingar) er þá ekki eðlilegt að farið sé með þá sem fávita? Að aðhald sé miklu meira en annars staðar?
Það er ekkert mál að ná sér í áfengi hérna ef það þarf. Vínbúðir eru út um allt.
Ég átta mig ekki alveg hvað þú ert að fara með þessari færslu ???
Páll Geir Bjarnason, 20.10.2007 kl. 23:29
Mér finnst ekkert af þessum greinum sem þú bendir á styðja beinlínis undir þá skoðun þína á að ekki megi selja vín í búðum. Alkohólismi er alvarlegur hlutur sem allir geta verið sammála um...........en rökin Páll Geir, mér finnst þau vanta. Þú fullyrðir að Bretar og Finnar stórsjá eftir að hafa opnað fyrir áfengissöluna. Hvernig getur þú alhæft svona hluti fyrir heilu þjóðirnar.? Þú talar um "ótúrlega ófagleg" vinnubrögð, þar er ég þér ósammála. Mér finnst margt í frumvarpinu vel unnið og fróðlegt. Þegar málflutningur einkennist að hroka, stífni og stórmannlegum yfirlýsingum missir hann marks. Því miður virðast þinn málflutingur hníga í þá átt.
Berglind Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 09:24
Sæll Páll Geir
Mig langar til að þú upplýsir mig um hvaðan þú hefur eftirfarandi fullyrðingu:
Ég veit ekki um neitt fylki Bandaríkjanna sem leyfir ekki sölu á áfengum bjór í stórmörkuðum. Þrjú eða fjögur þeirra binda söluna við bjór með lágri alkahólprósentu 3.2% en það er bjór engu síður.
Hér í Virginíu eru ríkisreknar vínbúðir en þær selja engöngu áfengi og svo léttvín ættuð frá fylkinu. Aðrir selja ekki sterk vín. Ef ég er ekki ánægður með þjónustu ABC búðanna þá get ég keyrt til Maryland eða D.C. nú eða verslað á netinu þar sem er hægt að fá ginflösku á 7$
Friðjón R. Friðjónsson, 25.10.2007 kl. 21:10
fullyrðingin kom í athugasemd frá þér á blogi mínu titlað SÁÁ og vínið
Friðjón R. Friðjónsson, 26.10.2007 kl. 02:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.